|
|
22.03.2008 13:55:14 / dæsí
Jæja þá er páskahátíðin gengin í garð með öllu sínu áti  Stóð í stað í síðustu vigtun, varð fyrir svolitlum vonbrigðum því mér fannst mér ganga nokkuð vel. Kannski verður þetta ekki svona fyrirhafnarlítið eins og ég var að vona  En ég sá samt líka hvað vatnið hefur mikið að segja, ég drakk ekki eins mikið vatn þessa viku, er nefnilega vön að vera með vatnsbrúsa og þamba úr honum en ég gleymdi honum á einum vinnustaðnum mínum og þá er bara öll mín vatnsdrykkja úr sögunni  Það virðist nefnilega vera of mikið að fara alla leið að vaskinum og fá sér vatn! Eins ef ég er með vatn í hálfs líters flösku þá þarf ég að SKRÚFA tappann af!! Það er mér bara ofviða  Hehe segi nú bara svona en þetta er samt staðreynd að ég drekk minna vatn ef ég er ekki með brúsa, hef samt verið meðvitaðari en áður að fá mér vatsglas við hvert tækifæri í vinnunni en mér finnst best að hafa bara brúsann á ræstivagninum  En nóg um vatnið,nú eru komnir páskar og ég ætlaði ekki að láta það hafa áhrif heldur hafa bara nammidaginn á sunnudaginn í staðinn, en sú varð ekki raunin  Er búin að narta í nammi og snakk alla dagana, takið samt eftir narta ekki hakka í mig  Ætla líka að sötra smá bjór í kvöld þannig að ég á ekkert von á því að vigtin verði neitt góð við mig næst. En það er bara að sjá til og vona, verð fegin ef ég stend bara í stað. Þangað til þá , bless bless og gleðilega páska
»
14.03.2008 18:45:42 / dæsí
Jæja, gat ekki bloggað á miðvikudag sökum netleysis en það er allt komið í lag. Þið hafið örugglega hugsað með ykkur jæja enn önnur bloggfærslan full af yfirlýsingum og svo gerist ekkert meir  En það var ekki raunin í þetta sinn, ég er enn reyklaus og 1,4 kg kvöddu þessa viku  Er ótrúlega ánægð með mig þessa dagana. En aftur á móti er svo hættulegt fyrir mig þegar ég léttist svona fyrirhafnalítið að ég fari að hugsa: Iss þetta súkkulaðistykki hafði ekkert að segja á vigtinni síðustu viku þannig að 2 hljóta að vera í lagi núna  Svo vindur þetta uppá sig smá saman þar til að ég er komin aftur í sömu spor, verð bara að vera dugleg að muna hvernig þetta hefur endað hingað til og ef ég man það ekki þá verðið þið að minna mig á það  Ætla samt að hafa nammidag á morgun, fer út að borða með Svavari og krökkunum annað kvöld og svo er aldrei að vita nema maður fái sér eitthvað smá óhollustu yfir imbanum  En allavega ætla ég að segja þetta gott í bili, þangað til næst bæ bæ
»
08.03.2008 11:24:15 / dæsí
Það er greinilegt að ég er í nautsmerkinu, þrjóskan  En nú er ég hætt að reykja, komnar 2 vikur, og er öll að færast yfir á hollari nótur  Hef samt bætt á mig 2kg á þeim tíma en það var áður en ég tók í taumana, var aðeins byrjuð að missa mig í átinu  Ætla ekki að setja mig undir mikla pressu eins og ég hef gert hingað til. Ég hef varla snert við nammi síðustu daga og passa hvað ég er að setja ofaní mig. Ef ég hef val um eitthvað tvennt eða fleira þá vel ég hollasta kostinn. Ég ætla ekki að fara í strangara aðhald í bili, ætla ekki á danska sem stendur því mér finnst það of mikil pressa en svo með tímanum verð ég strangari á þessu. Ætla bara ekki að vera með of miklar yfirlýsingar og væntingar því þá verð ég bara svekktari ef illa gengur  . Í sambandi við hreyfingu þá ætla ég að byrja á því að fara út að labba þegar ég get og hjóla kannski þegar snjóa leysir og svo kannski þegar ég er tilbúin þá fer ég í ræktina. Svo koma viktunartölur á miðvikudögum og síðasta miðvikudag sýndi hún 84,8 og vonast ég til að vera allavega komin undir 84 í næstu viktun
»
03.01.2008 19:58:04 / dæsí
Jæja vigtin var ekki eins vond og ég hélt, 82,7 sýndi hún, átti satt að segja von á hærri tölu þannig að þetta var "ánægjulegt" er að sjáfsögðu ekki sátt við að vera örðinsvona þung. Fór og verslaði grænmeti og svona í dag og ætla að byrja rólega yfir helgina og svo fara alveg af stað á mánudag. Ætlaði að skrifa einhvern helling hérna en ég hef greinilega týnt því öllu  Jæja ég skrifa þá bara seinna ef andinn kemur yfir mig
»
02.01.2008 18:32:29 / dæsí
»
09.05.2007 19:30:25 / dæsí
»
11.04.2007 21:12:45 / dæsí
»
27.03.2007 20:17:46 / dæsí
»
14.03.2007 20:57:52 / dæsí
»
13.03.2007 23:23:27 / dæsí
»
08.03.2007 21:04:16 / dæsí
»
06.03.2007 21:02:42 / dæsí
»
26.02.2007 19:36:28 / dæsí
»
11.02.2007 12:23:08 / dæsí
»
08.02.2007 20:14:33 / dæsí
»
Síður: 1 2
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 9113
|